"Minnsti skemmtistaður í heimi" sigraði
1. apríl 2026

"Minnsti skemmtistaður í heimi" sigraði

DISKÓ FRISKÓ eða „minnsti skemmtistaður í heimi“, bar sigur úr býtum í árlegri lokakeppni námskeiðsins Framsetning og sala hugmynda við Háskólann á Bifröst og vakti mikla lukku dómnefndar.

Keppnin fór fram í Grósku og á Teams þar sem 11 nemendahópar kynntu hugmyndir sínar fyrir dómnefnd skipaðri reynslumiklu fólki úr menningar- og atvinnulífi, í anda þáttanna Lövens hule, Shark Tank og Dragons’ Den. Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í að koma hugmyndum sínum á framfæri á skýran og sannfærandi hátt.

Sigurhugmyndin, DISKÓ FRISKÓ, er færanlegt „stuðbox“ sem gerir fólki kleift að stíga inn í örstutta dans- og tónlistarupplifun hvar og hvenær sem er. Hugmyndin vakti sérstaka athygli fyrir líflega og frumlega framsetningu.

Að sögn Sirrýjar Arnardóttur, kennara námskeiðsins, fóru nemendur ótroðnar slóðir í kynningum sínum og leyfðu sköpunarkraftinum að njóta sín. „Það komu fram alls kyns óvæntar útfærslur, meðal annars með leikmunum, tónlist og jafnvel hundum."

Í öðru sæti varð hugmynd að fataversluninni Stórir strákar, sem sérhæfir sig í litríkum og töff fatnaði fyrir karlmenn í yfirstærðum, markhópur sem nemendahópurinn segir vanræktan. Að mati hópsins vantar slíka verslun á íslenskan markað. Ein þeirra hugmynda sem vakti líka mikla lukku var Hundaleiksskólinn, þar sem fjórir hundar tóku þátt í kynningunni.

Þátttakendur voru nemendur úr Skapandi greinum annars vegar og Almannatengslum hins vegar. Í námskeiðinu Framsetning og sala hugmynda þjálfar Sirrý Arnardóttir fólk í að kynna og selja hugmyndir sínar á grípandi og hnitmiðaðan hátt. Hún segir sérstaklega áberandi í ár hve margar hugmyndanna beindust að sjálfbærni, endurnýtingu og skapandi lausnum. „Unga fólkið er með puttann á púlsinum og vill endurnýta textíl, minnka sóun og hafna einnota vörum. Nemendur vildu meðal annars samnýta hljóðupptökuver, huga að dýravelferð og skapa lausnir fyrir spennulosun. Ég fór virkilega bjartsýn út eftir keppnina“ Sagði Sirrý.