
Mikill áhugi á námi við Háskólann á Bifröst – yfir 1.200 umsóknir borist
Alls höfðu borist yfir 1.200 umsóknir um nám við Háskólann á Bifröst fyrir skólaárið 2025–2026 þegar umsóknarfresti lauk þann 5. júní síðastliðinn.
Af þessum umsóknum eru um 500 í grunnnám, rúmlega 600 í framhaldsnám og tæplega 80 í undirbúningsnám Háskólagáttar. Skráning í Háskólagátt stendur enn yfir og lýkur 23. júní.
„Það varð mikil fjölgun í umsóknum í fyrra þegar nemendafjöldi við skólann þrefaldaðist, en þá bárust rúmlega 1.400 umsóknir. Það hefur því verið ánægjulegt að sjá umsóknartölur þessa árs á pari við metárið í fyrra. Þetta sýnir að vinsældir fjarnáms við Háskólann á Bifröst eru komnar til að vera,“ segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst.
Umsóknir eftir deildum
Háskólinn skiptist í þrjár fræðasviðsdeildir: viðskiptadeild, félagsvísindadeild og lagadeild, sem allar bjóða fjölbreytt úrval námsleiða á grunn- og meistarastigi.
- Viðskiptadeildin er stærst og hlaut alls 240 umsóknir í grunnnám og 446 í framhaldsnám.
- Félagsvísindadeildin fékk alls 320 umsóknir, þar af rúmlega 200 í grunnnám.
- Lagadeildin, sem býður upp á þrjár námsleiðir (tvær á meistarastigi og eina á grunnstigi), fékk alls 110 umsóknir.
Fjarnám sem hentar lífi og aðstæðum
Þessi mikla aðsókn tvö ár í röð undirstrikar sterka stöðu Háskólans á Bifröst sem leiðandi fjarnáms háskóla, þar sem megináhersla er lögð á gæði náms, sveigjanleika og persónulega þjónustu.
Við hlökkum til að taka á móti öllum nýnemum og bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til Bifrastar!
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta