3. nóvember 2026

Mikil ánægja meðal nemenda Háskólans á Bifröst – 93% mæla með námi við skólann

Niðurstöður nýrrar gæðakönnunar meðal nemenda Háskólans á Bifröst sýna mikla ánægju með nám og kennslu við skólann. Alls segjast 93% nemenda myndu mæla með námi við háskólann og 95% telja skipulag námsins gott. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að ánægja nemenda með gæði námsins hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

Gæðakönnunin var send út í september 2026 til nemenda í grunn- og framhaldsnámi sem höfðu þegar öðlast reynslu af námi við háskólann. Nýnemar voru undanskildir að þessu sinni. Alls bárust 341 svar og var svarhlutfallið 31%.

Markmið könnunarinnar var að fá fram viðhorf nemenda til náms og kennslu og nýta niðurstöðurnar til áframhaldandi gæðaþróunar innan deilda háskólans.

Ánægja með gæði og skipulag námsins eykst

Niðurstöðurnar sýna að 90% nemenda telja gæði náms síns góð, samanborið við 86% árið 2024 og 77% árið 2022. Þá telja 95% nemenda skipulag námsins gott, en það hlutfall var 89% árið 2024.

Einnig kemur fram að 93% nemenda myndu mæla með námi við Háskólann á Bifröst, samanborið við 91% árið 2024. Jafnframt segjast 93% hafa jákvæða heildarsýn á háskólann.

Upplýsingagjöf kennara fær einnig góða einkunn en 91% nemenda telja hana góða, samanborið við 84% árið 2024. Þá telja 93% nemenda að verkefnavinna hjálpi þeim að ná tökum á námsefninu.

Sveigjanleiki námsins og stafræn kennsla meðal helstu styrkleika

Niðurstöður könnunarinnar undirstrika sterka stöðu Háskólans á Bifröst í nýtingu stafrænnar tækni við kennslu.

Alls telja 96% nemenda að háskólinn nýti upplýsingatækni og stafræn kerfi vel í kennslu, svo sem Canvas, Uglu og Inspera. Þá telja 93% að skólinn nýti samskiptatækni vel í kennslu, meðal annars Teams, umræðuþræði og tölvupóst.

Í opnum svörum nemenda kemur jafnframt fram mikil ánægja með fjarnámsfyrirkomulag skólans. Sveigjanleiki námsins er þar sérstaklega nefndur sem einn af helstu styrkleikum háskólans.

Þetta skiptir ekki síst máli í ljósi þess að stór hluti nemenda stundar nám samhliða atvinnu. Samkvæmt könnuninni eru 75% svarenda í fullri vinnu með náminu og 15% í hlutastarfi.

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst kveðst afar ánægð með þessar niðurstöður sem hún segir að hafi farið fram úr björtustu vonum að þessu sinni. "Árlegar gæðakannanir eru liður í okkar viðvarandi gæðamati og svörunin gefur okkur dýrmætar vísbendingar um það hvort við erum á réttri leið. Samkvæmti þessari könnun erum við það svo sannarlega, gæði námsins hafa aldrei mælst hærri meðal nemenda og það er mikið gleðiefni" bætir hún við.

Niðurstöðurnar verða nýttar í innra gæðastarfi deilda Háskólans á Bifröst og veita mikilvæga innsýn í upplifun nemenda og tækifæri til frekari umbóta.