Nivi Olsen, mennta-, menningar-, íþrótta- og kirkjumálaráðherra Grænlands ásamt Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, rektor Háskólans á Bifröst

Nivi Olsen, mennta-, menningar-, íþrótta- og kirkjumálaráðherra Grænlands ásamt Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, rektor Háskólans á Bifröst

9. júní 2026

Menntamálaráðherra Grænlands heimsótti Háskólann á Bifröst

Nivi Olsen, mennta-, menningar-, íþrótta- og kirkjumálaráðherra Grænlands, heimsótti Háskólann á Bifröst í dag og kynnti sér starfsemi skólans með sérstakri áherslu á fjarnám og sveigjanlegar námsleiðir.

Í heimsókninni fundaði ráðherrann með dr. Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, rektor Háskólans á Bifröst, auk annarra fulltrúa skólans.

Megintilgangur heimsóknar ráðherra er að kynna sér þá reynslu sem Háskólinn  á Bifröst hefur byggt upp á sviði fjarnáms. Háskólinn hefur um árabil verið leiðandi á því sviði á Íslandi og býður upp á námsumhverfi sem gerir nemendum kleift að stunda háskólanám óháð búsetu.

„Það gleður okkur að geta miðlað af okkar reynslu og þekkingu til okkar góðu nágranna Grænlendinga. Landfræðilegar aðstæður í Grænlandi eru þannig að það er mikilvægt fyrir þá að geta fært menntunarmöguleikana til fólksins í dreifðari byggðum. Í því sambandi höfum við góð ráð að gefa hér við Háskólann á Bifröst,“ segir Ólína sem kveðst jafnframt vona að heimsóknin geti verið liður í áframhaldandi samstarfi landanna á sviði menntunar, með sérstaka áherslu á að þróa lausnir fyrir dreifð samfélög.

Á fundinum voru rædd sameiginleg viðfangsefni Íslands og Grænlands á sviði háskólamenntunar, mikilvægi þess að tryggja aðgengi að námi um allt land og tækifæri til aukinnar þekkingarmiðlunar og samstarfs á Norðurslóðum.

Nivi Olsen er sjálf með meistaragráðu í félagsvísindum frá Ilisimatusarfik, Háskóla Grænlands í Nuuk, og hefur um árabil komið að stefnumótun í menntamálum í Grænlandi. Ilisimatusarfik er eini háskóli Grænlands og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu háskólamenntunar og rannsókna í landinu.

Háskólinn á Bifröst þakkar ráðherra heimsóknina og um leið tækifæri til frekari tengsla og samstarfs milli Íslands og Grænlands á sviði menntunar, rannsókna og samfélagsþróunar.