Menningarsjá Íslands í Hvítbók um byggðamál
25. júní 2026

Menningarsjá Íslands í Hvítbók um byggðamál

Í nýrri Hvítbók um byggðamál er lögð fram aðgerð um Menningarsjá Íslands, stafræna kortlagningu menningar og menningarinnviða um land allt. Aðgerðin byggir á rannsóknavinnu Önnu Hildar Hildibrandsdóttur og Ernu Kaaber við Háskólann á Bifröst innan Horizon Europe verkefnisins IN SITU.

Í Hvítbókinni segir: „Unnin verði Menningarsjá sem sýni með myndrænum hætti aðgengi landsmanna að menningarstarfsemi, menningarstofnunum, viðburðum, skapandi greinum og menningarinnviðum um land allt.“

Menningarsjánni er ætlað að skapa gagnagrunn og myndræna framsetningu sem nýtast megi við stefnumótun, forgangsröðun stuðnings og mótun aðgerða á sviði menningar og byggðamála.

Rannsóknirnar við Bifröst hafa beinst að hlutverki menningar, skapandi greina og menningarinnviða í byggðaþróun, með sérstakri áherslu á dreifbýl svæði og þátt menningar í nýsköpun, samfélagslegri seiglu og staðbundinni verðmætasköpun.

Að mati Önnu Hildar og Ernu er mikilvægt að menning sé ekki aðeins skilin sem viðburðir eða afþreying, heldur sem hluti af innviðum samfélaga. Lesa má frekar um hugmyndina að Menningarsjá í grein eftir þær sem birtist á visir.is

Verkefnið tengist jafnframt áframhaldandi rannsóknavinnu við Háskólann á Bifröst um menningu sem innviði í byggðaþróun og hlutverk skapandi frumkvöðla í jaðarsvæðum. Hvítbókin er í samráðgátt stjórnvalda til 18. ágúst.