Menning, stýring og skapandi greinar
Við köllum eftir fræðilegum köflum í bók sem ber vinnuheitið Menning, stýring og skapandi greinar. Markmið bókarinnar er að rannsaka og varpa ljósi á stjórnun, stefnumótun og starfshætti innan íslensks menningarlífs og skapandi atvinnugreina. Við viljum leggja áherslu á læsileika og almenna lesendur, og greinar er varða áskoranir í samtímanum, og rannsóknir á breytingum í samtímanum og mögulegri spennu innan greina eða milli sviða eru sérstaklega vel þegnar.
Ritið er hugsað sem vettvangur fyrir gagnrýna og upplýsandi nálgun á menningarstjórnun í íslensku samhengi, þar sem spurningar um gildi, tilgang, skipulag og samfélagslegt hlutverk menningar eru í forgrunni. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig ólík sjónarhorn, hagsmunir og virði (t.d. hagræn, fagleg, listræn eða samfélagsleg) mætast og takast á í daglegu starfi og stefnumótun.
Bókin gagnast þeim sem starfa við eða stýra stefnumótun innan menningar- og skapandi greina, auk þess sem rannsakendur, nemendur og fagfólk geta fengið innsýn í ólíka kima, aðferðir og orðfæri. Hver kafli þarf því að staðsetja vel orðræðuna, setja sviðið og útskýra fyrir óinnvígðum í stuttu máli hverjar áskoranirnar eru.
Viðfangsefni kafla geta meðal annars verið:
- Menningarstefna og stjórnsýsla menningarmála á Íslandi.
- Vistkerfi skapandi greina.
- Rannsóknir á einstökum geirum, skipulagsheildum eða rekstrarformum.
- Menningarstjórnun, fjármögnun og rekstur menningarstofnana.
- Efnahagslegar áskoranir og nýsköpun.
- Tækniáskoranir í umhverfi skapandi greina.
- Samfélagsleg ábyrgð í menningarstarfi, t.d.sjálfbærni, inngilding og umhverfismál.
- Vinnumarkaður, starfsumhverfi og starfsferlar í skapandi greinum.
- Gagnrýnin nálgun á stjórnun, vald eða fagmennsku í menningarstarfi.
- Menningartengd ferðaþjónusta og upplifunariðnaður.
- Samband menningar og náttúru innan menningar og skapandi greina.
- Markaðir, gestir og áhorfendaþróun.
- Menningararfur, varðveisla og miðlun.
- Menningartengd ferðaþjónusta og upplifunariðnaður.
Við tökum einnig vel á móti öðrum viðfangsefnum sem falla að meginþema bókarinnar.
Aðferðafræði og nálgun
Við hvetjum sérstaklega til gagnrýninnar nálgunar en kaflarnir geta byggt á fjölbreyttum aðferðum, svo sem:
- Eigindlegum rannsóknum (viðtöl, vettvangsathuganir o.fl.)
- Megindlegum gögnum og greiningu.
- Texta- og orðræðugreiningu (t.d. á stefnuskjölum eða texta í víðara samhengi).
- Samanburðarrannsóknum.
- Hugmyndafræðilegum og kenningalegum úttektum.
- Reynslu- og starfssögum með fræðilegri umgjörð.
Skil og tímalína
- Ágrip (200–300 orð): 15. september 2026
- Svar um samþykki: 30 október 2026
- Fyrstu drög að köflum: 1. febrúar 2027
- Lokaskil fyrir ritrýni: 1. maí 2027
Lengd greina: Áætluð lengd er 5.000–7.000 orð (með heimildaskrá).
Ritrýni: Allar greinar fara í ritrýni.
Tungumál: Kaflarnir eru á íslensku.
Markhópur: Bókin er ætluð fræðasamfélaginu, nemendum og fagfólki á sviði menningarstjórnunar, menningarstefnu og skapandi greina.
Umsóknir og fyrirspurnir: Áhugasamir eru beðnir um að senda ágrip og stutta kynningu á höfundi/höfundum til ritstjóra:
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta