Teitur er lengst til vinstri á myndinni.
4. janúar 2019Mannabreytingar á markaðssviði
Teitur Erlingsson hefur verið ráðin til starfa sem samskiptastjóri við markaðssvið skólans. Teitur hefur hafið störf en hann tekur við starfinu af Maríu Ólafsdóttur sem fer í fæðingarorlof 1. febrúar og Lilju Björg Ágústsdóttur sem hefur verið ráðin sem verkefnastjóri kennslu við skólann.
Samskiptastjóri hefur m. a. forystu í markaðsmálum, sér um samstarf við aðila skólans, vinnur frétta og kynningarefni fyrir skólann, veitir ráðgjöf vegna efnis sem sent er í nafni skólans, heldur utan um heimasíðu skólans og sér um ritstjórn á henni, ber ábyrgð á innri markaðsmálum, fylgist með upplýsingaflæði skólans, viðburðastjórnun og fleira.
Teitur lauk B.A. gráðu í Heimspeki, hagfræði, og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst nú um áramótin. Á meðan hann var nemandi við skólann vann hann með markaðsdeildinni við kynningar á skólanum á ýmsum vettvangi sem og að sinna ýmsum trúnaðarstöðum fyrir skólann og Nemendafélag Háskólans á Bifröst. Teitur starfar einnig í dag sem varaformaður Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Á sama tíma og við bjóðum Teit velkominn til starfa þá óskum við Maríu alls hins besta þegar bumbubúinn lætur sjá sig og Lilju í nýju starfi.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta