Málþing um flóttabörn á Íslandi
Málþing um flóttabörn sem koma til Íslands og stöðu þeirra samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna verður haldið fimtudaginn 11.febrúar næstkomandi, í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu.
Hugmyndin að baki málþinginu, sem er skipulagt í sameiningu af UNICEF á Íslandi og Lögfræðisviði Háskólans á Bifröst, er að fræða almenning um það hverjar skuldbindingar okkar Íslendinga eru t.d. gagnvart flóttabörnum.
„Flóttafólki í heiminum fjölgar stöðugt og í þeirra hópi eru fjölmörg börn sem biðja um alþóðlega vernd meðal annars á Íslandi. Við erum flest öll meðvituð um neyðina þar að baki en síður meðvituð um það hver réttur flóttafólks er að lögum hér á landi. Í því sambandi hefur mikla þýðingu að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur hér á landi árið 2013," segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst, sem fer með fundarstjórn á málþinginu.
Frummælendur málþingsins hafa allir þekkingu á málaflokknum ýmist úr starfi eða vegna rannsókna. Málþingið er öllum opið og stendur frá 12-13:30.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta