Málþing Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum
1. september 2026

Málþing Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum

Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum stendur fyrir málþingi á netinu fimmtudaginn 22. október þar sem sjónum verður beint að nýlegum rannsóknum setursins og málefnum byggða og sveitarstjórna.

Á málþinginu verða kynntar nýlegar rannsóknir sem unnar hafa verið á vegum setursins. Einnig verða á dagskrá fróðleiksmolar beint úr héraði og gefið rými fyrir umræður og samtal um viðfangsefni málþingsins.

Nánari dagskrá og upplýsingar um erindi og þátttöku verða kynnt þegar nær dregur.

Takið daginn frá!
Málþingið fer fram á netinu fimmtudaginn 22. október. Við hvetjum áhugasöm til að festa dagsetninguna strax í dagatalið.