16. apríl 2015
Málstofa Nomos: Jón Steinar Gunnlaugsson
Fimmtudaginn 16.apríl mun Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi Hæstaréttadómari koma á Bifröst og halda málstofu í boði Nomos.
Jón Steinar mun fjalla um störf dómara, lögmanns og lífið í Hæstarétti. Einnig mun hann fjalla almennt um þjóðlífið hér á landi. Bók hans „Í krafti sannfæringar“ gaf Jón Steinar út í lok síðasta árs sem fjallaði um sömu málefni.
Málstofan er fyrir alla þá sem láta sig meðferð dómsmála varða og raunar alla þá sem áhuga hafa á þjóðmálum almennt.
Viðburðurinn verður í Hriflu kl. 17.00.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta