Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi
30. september 2026

Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi

Þann 20. nóvember næstkomandi er útgáfudagur nýrrar skýrslu CRANET á Íslandi sem ber heitið Lykilmælikvarðar, staða og þróun mannauðsmála á Íslandi - Alþjóðlega CRANET rannsókninn 2026. Þá verða helstu niðurstöður rannsóknarinnar einnig kynntar á morgunfundi þann sama dag, kl. 9:00 - 10:30 í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Dr. Arney Einarsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst og ábyrgðaraðili Cranet rannsóknarinnar fyrir Íslands hönd mun ásamt Dr. Ástu Bjarnadóttur, skrifstofustjóra starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg og Dr. Katrínu Ólafsdóttur, dósent við Háskólann í Reykjavík kynna lykilniðurstöður, lykilmælikvarða, þróun og alþjóðlegan samanburð á sviði mannauðsmála úr CRANET rannsókninni 2026.

CRANET-rannsóknin er alþjóðlegt samstarfsverkefni um 40 háskóla í jafnmörgum löndum sem framkvæma reglubundið kannanir meðal mannauðsstjóra í aðildarlöndunum fyrir samanburðar-og langtímarannsóknir á sviði mannauðsmála. Markmiðið er að viðhalda og byggja upp þekkingu á sviði mannauðsstjórnunar í hverju landi fyrir sig – sem og alþjóðlega. Fjallað er um aðferðir sem beitt í ráðningum, starfsþróun, frammistöðumati, kjaramálum og samskiptum, auk greiningar á þroskastigum mannauðsstjórnunar. Auk þess er komið inn á þætti er varða sjálfvirknivæðingu, gervigreind og aðgerðir á sviði heilsu og velferðar.