Susan Luckman með fyrirlestur sem hún nefnir: „Allt sem er gamalt verður aftur nýtt“: Staðbundin nýsköpun og verðmætasköpun á tímum gervigreindar.
11. maí 2026Lokaráðstefna IN SITU í streymi
Lokaráðstefna Horizon Europe rannsóknarverkefnisins IN SITU fer nú fram í Valmiera í Lettlandi og er einnig í beinu streymi hér.
Á ráðstefnunni eru kynntar helstu niðurstöður og arfleifð verkefnisins eftir fjögurra ára samstarf rannsakenda og samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu.
Rannsóknin hefur beinst að því hvernig menning og skapandi greinar geta stuðlað að nýsköpun og sjálfbærri þróun í landsbyggðum og jaðarsettum samfélögum. Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Erna Kaaber eru fulltrúar Háskólans á Bifröst í verkefninu.
Aðalræðumaður dagsins er Susan Luckman frá University of South Australia. Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi tengslamyndunar, samstarfs og staðbundinnar þróunar sem byggir á menningu og skapandi greinum fyrir framtíð samfélaga utan þéttbýlis.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta