Dr. Patrick Collins, Einar Svansson prófessor og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, doktorsnemi við Háskólann í Galway og fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst.

Dr. Patrick Collins, Einar Svansson prófessor og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, doktorsnemi við Háskólann í Galway og fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst.

7. maí 2026

Ljóðskáldið, ljóðið og staðurinn

Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fagstjóri skapandi greina við Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst, og Einar Svansson, prófessor við Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, héldu opinn fyrirlestur 6. maí við Háskólann í Galway um hvernig jólasveinarnir úr ljóðum Jóhannesar úr Kötlum hafa áhrif á staðarímynd og menningartengda ferðaþjónustu í Dalabyggð. Fyrirlesturinn var hluti af Horizon Europe-rannsóknarverkefninu IN SITU sem bæði Háskólinn á Bifröst og Háskólinn í Galway taka þátt í.

Anna Hildur stundar doktorsnám í menningarlandafræði við Háskólann í Galway og hefur rannsakað hvernig jólasveinarnir þrettán og íslensk jólahefð eru endurtúlkuð í gegnum landslag, menningu og frumkvæði skapandi frumkvöðla í Dalabyggð. Í fyrirlestrinum var fjallað um hvernig arfleifð Jóhannesar úr Kötlum lifir áfram og mótar staðarímynd og upplifun gesta í Dölum.

Jóhannes var frá Ljárskógarseli í Dölum og hefur tengingin við heimabyggð hans verið nýtt til að efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu. Á Erpsstöðum hefur þegar verið reist stytta af Skyrgámi og stefnt er að því að koma upp minnismerkjum um alla jólasveinana þrettán á mismunandi stöðum í Dalabyggð á næstu misserum.

Fyrirlesturinn byggði jafnframt á niðurstöðum Evrópuverkefnisins IN SITU, þar sem Erpsstaðir eru ein af tólf tilviksrannsóknum í sex Evrópulöndum. Verkefnið fjallar meðal annars um áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun og þróun í landsbyggðum.

Viðburðurinn var haldinn á vegum landafræðideildar Háskólans í Galway í samstarfi við Horizon Europe-rannsóknarverkefnið IN SITU, sem bæði Háskólinn í Galway og Háskólinn á Bifröst taka þátt í. Að fyrirlestri loknum stýrði Dr. Patrick Collins líflegum umræðum um tengsl þjóðtrúar, bókmennta og staðarmótunar í samtímanum.