Lærðu þýsku ókeypis með OpenEU
26. mars 2026

Lærðu þýsku ókeypis með OpenEU

FernUniversität í Hagen býður nú nemendum og starfsfólki innan háskólanetsins OpenEU upp á ókeypis námskeið í þýsku. Háskólinn á Bifröst er hluti af OpenEU, og því býðst nemendum og starfsfólki tækifæri til að læra þýsku án endurgjalds. Áhugasamir skrá sig á vef FernUniversität.

Námskeiðið stendur yfir í 12 vikur og hefst mánudaginn 27. apríl 2026 og  er ætlað byrjendum á A1 stigi. Námskeiðið er opið nemendum og starfsfólki innan OpenEU.

  • Tímasetning: Kennt er á mánudögum kl. 18:00–19:30 að íslenskum tíma.
  • Fyrirkomulag: Námskeiðið fer fram í beinni útsendingu á netinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026. Athugið að takmarkað pláss er í boði og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst. Eftir skráningu munu umsækjendur fá staðfestingu í tölvupósti varðandi endanlega inngöngu.