2. febrúar 2023
Kvenhatur í nýrri mynd
Dr. Bjarki Grönfeldt, lektor við Háskólann á Bifröst, fjallar á Jafnréttisdögum um Incel hreyfinguna og nýja gerð af kvenhatri.
Fyrirlesturinn nefnist Incel: Internetið, kvenhatur og samsæriskenningar (Incels: Internet, Misogyny and Conspiracy) og verður fluttur í Háskóla Íslands, HT-101, mánudaginn 6. febrúar, kl. 15:00-16:00.
Incel nefnist hreyfing sem vaxið hefur ásmegin á meðal ungra karla í vissum kreðsum internetsins. Hreyfingin byggir á nýrri gerð kvenhaturs sem samtvinnast samsæriskenningum og ofbeldisfullum skoðunum í garð kvenna.
Í fyrirlestrinum verður farið yfir nýlega rannsókn á sálfræðilegum rótum Incel-skoðana og reifað hvað sé hægt að gera til að sporna gegn útbreiðslu þeirra.
Panta má táknmálstúlkun á viðburði Jafnréttisdaga með tölvupósti á adstodarmenn@hi.is.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta