Kristinn Leví nýr fjármálastjóri Háskólans á Bifröst
10. september 2026

Kristinn Leví nýr fjármálastjóri Háskólans á Bifröst

Kristinn Leví Aðalbjörnsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst. Tekur hann einnig sæti í framkvæmdastjórn háskólans. Hann býr yfir víðtækri reynslu af fjármálum og rekstri, svo sem fjárhagsstýringu, áætlanagerð, greiningum og kostnaðareftirliti. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri S.Iceland  ehf. og þar áður hjá Stólpa gámum við rekstrartengd verkefni. 

Hann er fæddur á Ísafirði og ólst upp í Hnífsdal. Hann byrjaði ungur að vinna og var fyrsta launaða starfið hans við útskipun á mjöli. Sjávarútvegurinn var hans starfsvettvangur framan af starfsævinni, og starfaði hann meðal annars hjá Bakka hf. og sat um tíma í stjórn félagsins.

Kristinn er með BSc gráðu í viðskiptafræði og hefur auk þess sótt sér margþætta þekkingu, s.s. í tengslum við fjármál og afleiður.  Hann hefur mikinn áhuga á þróun ferla og hvernig nýta má gögn og tækni til að styðja við betri ákvarðanatöku og rekstur.

Utan vinnu hefur hann mikinn áhuga á líkamsrækt, ferðalögum og persónulegri þróun. Hann hefur einnig gaman af hönnun og skapandi verkefnum og málar hann meðal annars í frístundum. Nýjasta og eitt skemmtilegasta hlutverkið er svo að vera afi. 

Við bjóðum Kristinn Leví velkominn til starfa.