Klara Elías ásamt alþjóðlegum stjörnum með verðlaunalag
Lagið In The Sound of Breathing eftir Ólaf Arnalds, Loreen, Sandrayati og Klöru Elías var valið raftónlistarlag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í síðustu viku.
Klara Elías, er á lokaári í BA-námi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst, og á að baki yfir tveggja áratuga feril í tónlist. Hún vakti fyrst athygli sem meðlimur í stúlknahljómsveitinni Nylon, einni vinsælustu hljómsveit landsins á sínum tíma, sem ruddi henni braut á tónlistarsviðinu bæði hér heima og erlendis. Eftir Nylon tímabilið flutti Klara til Los Angeles þar sem hún starfaði sem lagahöfundur og vann með listafólki víða um heim. Verðlaunin fyrir In The Sound of Breathing endurspegla áframhaldandi velgengni Klöru á alþjóðlegum vettvangi og samstarf hennar við framúrskarandi listafólk.
Nýverið tók Klara við hlutverki umsjónarmanns skapandi verkefna hjá Molanum, miðstöð ungs fólks í Kópavogi. Molinn er opið rými fyrir afþreyingu og listsköpun fyrir 16 - 25 ára Kópavogsbúa. Starfsemin byggir meðal annars á opnu frístundastarfi, ráðgjöf og hópastarfi í nánu samstarfi við ungmenni. Auk þess að leiða skapandi verkefni hússins yfir veturinn verkefnastýrir Klara Skapandi sumarstörfum Kópavogs sem veita ungu fólki tækifæri til að þróa eigin hugmyndir, efla sköpunarhæfni og öðlast reynslu af verkefnavinnu í listum og skapandi greinum.
Háskólinn á Bifröst óskar Klöru Elías innilega til hamingju með Íslensku tónlistarverðlaunin og nýja starfið.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta