Karlar í meirihluta í fjórum námsleiðum við Háskólann á Bifröst
Konur hafa um langt skeið verið í meirihluta þeirra sem stunda háskólanám á Íslandi og nýjustu tölur Hagstofu Íslands sýna að skólasókn kvenna á háskólastigi er hærri en karla í öllum aldurshópum. Við Háskólann á Bifröst má þó sjá athyglisverða undantekningu frá þessari þróun en karlar eru nú í meirihluta nemenda í fjórum námsleiðum skólans.
Námsleiðirnar eru öryggisfræði og almannavarnir, grunndiplóma í leiðtoganámi í hafgæslu og fjármálastjórnun, bæði í grunnnámi og meistaranámi.
Sameiginlegt með þessum námsleiðum er að þær hafa flestar verið þróaðar eða endurnýjaðar á síðustu árum og tvær þeirra hófu göngu sína nú í haust. Fjölbreyttara námsframboð getur þannig átt sinn þátt í að höfða til breiðari hóps nemenda, þar á meðal karla, sem hafa lengi verið í minnihluta í háskólanámi hér á landi.
Öryggisfræði og almannavarnir
BA-nám í öryggisfræðum og almannavörnum hóf göngu sína við Háskólann á Bifröst haustið 2024. Um er að ræða fyrsta grunnnám á háskólastigi hér á landi sem er sérstaklega tileinkað öryggisfræðum.
Námið er þverfaglegt og tekur meðal annars til öryggismála, almannavarna, stjórnsýslu, laga, stjórnunar og miðlunar. Nemendur fjalla um ógnir og áskoranir sem geta verið af völdum bæði náttúru og manna, allt frá náttúruhamförum og loftslagsbreytingum til netárása, skipulagðrar glæpastarfsemi og alþjóðlegra átaka.
Nýtt leiðtoganám í hafgæslu
Grunndiplóma í leiðtoganámi í hafgæslu hóf göngu sína haustið 2026. Námið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Landhelgisgæslu Íslands og Tækniskólans og er ætlað að svara þörf fyrir menntaða stjórnendur á sviði hafs, öryggis og siglinga.
Námið er 60 ECTS einingar og kennt yfir fjórar annir. Þar fléttast meðal annars saman leiðtogafræði, stjórnun, siglingafræði, lögfræði og öryggismál og lögð er áhersla á raunhæf verkefni og starfstengt nám í samstarfi við Landhelgisgæsluna.
Fjármálastjórnun í grunn- og meistaranámi
Karlar eru einnig í meirihluta í fjármálastjórnun við Háskólann á Bifröst, bæði í grunnnámi og nýju meistaranámi.
Í BS-námi í viðskiptafræði með áherslu á fjármálastjórnun er lögð áhersla á sérhæfða fjármálaþekkingu og hagnýta reynslu. Meðal viðfangsefna eru fjármál fyrirtækja, fjármálamarkaðir og kostnaðar- og stjórnunarbókhald.
Nýtt meistaranám í fjármálastjórnun hóf jafnframt göngu sína haustið 2026. Námið er 120 ECTS til MSc-gráðu eða 90 ECTS til MFM-gráðu. Þar fá nemendur meðal annars þjálfun í greiningu ársreikninga, fjárfestingum, áhættustýringu og stefnumótun.
Fjölbreytt námsframboð fyrir fjölbreyttan hóp
Kynjahalli í háskólanámi hefur lengi verið til umræðu og tölur Hagstofunnar sýna að konur eru um tveir af hverjum þremur nemendum í háskólanámi.
Fjórar námsleiðir Háskólans á Bifröst skera sig því úr hvað kynjahlutfall nemenda varðar. Þær eiga það jafnframt sameiginlegt að tengjast með beinum hætti við viðfangsefni og áskoranir samtímans – allt frá fjármálum og stjórnun til öryggis, almannavarna, hafsvæðastjórnunar og siglinga.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta