Kabarett hlaut Grímuverðlaun
29. maí 2026

Kabarett hlaut Grímuverðlaun

Söngleikurinn Kabarett, sem Leikhús Ókunnuga Fólksins frumsýndi í Þjóðleikhúskjallaranum fyrr á þessu ári, hlaut Grímuverðlaunin 2026 fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins. Auk þess var sýningin tilnefnd í flokkunum búningar ársins og sýning ársins.

Helena Hafsteinsdóttir, nemi á lokaári í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst, er framleiðslustjóri Leikhúss Ókunnuga Fólksins og einn af stofnendum þess. 

Leikhús Ókunnuga fólksins var sett á laggirnar vorið 2025 og er því ætlað að framleiða vandaðar sviðslistir og skapa ný og spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt listafólk með sérstakri áherslu á söngleikjaformið. Fjallað var um Helenu og starfsemi leikhússins á fréttavef Háskólans á Bifröst í mars síðastliðnum, skömmu eftir frumsýningu Kabaretts.

Verðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir sýninguna og allt það listafólk sem kom að uppsetningu hennar. Jafnframt staðfesta þau þann árangur sem Leikhús Ókunnuga Fólksins hefur náð á skömmum tíma frá stofnun þess árið 2025.

Sýningarröð Kabaretts í Þjóðleikhúskjallaranum lýkur 14. júní nk. og nú þegar er uppselt á allar sjö sýningarnar sem eftir eru.

Háskólinn á Bifröst óskar Helenu og öllum aðstandendum Kabaretts innilega til hamingju með Grímuverðlaunin og þann glæsilega árangur sem sýningin hefur náð.