Þrír rektorar, núverandi og fyrrverandi, leggja línurnar við upphaf skólaárs. Vilhjálmur Egilsson, ráðgjafi rektors og stjórnar, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, núverandi rektor og Jónas Guðmundsson, formaður Hollvinasamtakanna.
31. ágúst 2026Jónas Guðmundsson formaður Hollvinasamtaka
Jónas Guðmundsson, fyrrverandi rektor Samvinnuháskólans á Bifröst hefur verið kjörinn formaður stjórnar Hollvinasamtaka Háskólans á Bifröst.
Jónas starfaði við Samvinnuháskólann á Bifröst í 10 ár, frá 1989 til 1999, fyrst sem lektor, þá aðstoðarrektor og að lokum sem rektor. Hann var fjármálastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá 2002 til 2024. Hann er menntaður hagfræðingur frá bandarískum háskólum, með bachelor-gráðu frá Dartmouth College, masters-gráðu frá University of Illinois og stundaði síðan framhaldsnám við Columbia University.
Jónas var Fulbright Visiting Scholar við George Washington University 1999 til 2001 og rannskaði þar óhagnaðardrifin félög. Hann var einn af stofnendum Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, stjórnarmaður og síðar formaður samtakanna. Hann hefur setið í stjórnum margra félagasamtaka.
Eiginkona Jónasar er dr. Anh-Dao Katrín Tran, aðjúnkt og rannsakandi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta