Jólasveinarnir í sviðsljósinu á Vísindavöku
28. september 2026

Jólasveinarnir í sviðsljósinu á Vísindavöku

Háskólinn á Bifröst tók þátt í Vísindavöku Rannís sem haldin var í Laugardalshöll laugardaginn 26. september. Að þessu sinni voru íslensku jólasveinarnir í aðalhlutverki á bás háskólans þar sem sjónum var beint að tengslum menningararfs, staðarímyndar og ferðaþjónustu í Dalabyggð.

Á Vísindavöku kynnti Háskólinn á Bifröst rannsóknastarf sem tengist samstarfi Einars Svanssonar og INSITU-verkefnis Önnu Hildar Hildibrandsdóttur. Í brennidepli var hvernig jólasveinarnir úr ljóðum Jóhannesar úr Kötlum hafa áhrif á staðarímynd og hvernig nýta megi menningararfinn í tengslum við menningartengda ferðaþjónustu í Dalabyggð.

Jólasveinarnir þrettán skipa sérstakan sess í íslenskri þjóðarmenningu og tengjast Dalabyggð með verkum Jóhannesar úr Kötlum. Með rannsóknarverkefninu er meðal annars sjónum beint að því hvernig slíkur menningararfur getur mótað ímynd svæða og skapað tækifæri til nýsköpunar og þróunar í ferðaþjónustu.

Á bás háskólans var lögð áhersla á að kynna rannsóknarviðfangsefnið á aðgengilegan og skemmtilegan hátt fyrir alla aldurshópa, ekki síst yngstu gestina. Börnunum bauðst meðal annars að teikna uppáhaldsjólasveininn sinn og merkja inn á landakort hvar þau teldu jólasveinana eiga heima. Áhuginn var mikill og verkefninu vel tekið. Athygli vakti að flest barnanna staðsettu heimkynni jólasveinanna í Esjunni. Stúfur reyndist vinsælastur jólasveinanna en Hurðaskellir var einnig í miklu uppáhaldi. Með þessum hætti tókst að tengja rannsóknarstarfið við sköpun, leik og hugmyndir barnanna um íslenskan menningararf.

Vísindin fyrir alla

Vísindavaka er árleg uppskeruhátíð vísindanna á Íslandi, haldin á vegum Rannís, þar sem almenningi gefst tækifæri til að kynnast fjölbreyttu rannsóknar- og nýsköpunarstarfi háskóla, stofnana og fyrirtækja.

Viðburðurinn fór fram í Laugardalshöll frá klukkan 12 til 17 og var aðgangur ókeypis. Fjölskyldur og vísindaáhugafólk á öllum aldri lögðu leið sína á hátíðina þar sem hægt var að hitta vísindafólk, kynna sér rannsóknir og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.

Með þátttöku sinni á Vísindavöku kynnti Háskólinn á Bifröst rannsóknir sem varpa ljósi á samspil menningar, samfélags og byggðaþróunar og sýna hvernig íslenskur menningararfur getur orðið að viðfangsefni vísindalegrar rannsóknar.

Myndasafn