Bændurnir á Erpsstöðum: Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir. Mynd: Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Bændurnir á Erpsstöðum: Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir. Mynd: Anna Hildur Hildibrandsdóttir

30. apríl 2026

Jólasveinar sem byggðaþróunarverkefni

Ný ráðstefnugrein eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur kom út í vikunni í tímaritinu Contexto Debates sem gefið er út af Miðstöð félagsvísinda (Centre of Social Science – CES) við Coimbra háskóla í Portúgal. Greinin nefnist Skapandi frumkvöðlastarfsemi sem drifkraftur byggðaþróunar: Tilviksrannsókn frá Íslandi. Hún byggir á erindi sem Anna Hildur flutti á ráðstefnu um menningu sem CES stóð fyrir haustið 2024.

Á ráðstefnunni fjallaði Anna Hildur um Erpsstaði sem eitt af 12 tilvikum í  Horizon styrktu Evrópurannsókninni IN SITU sem Háskólinn á Bifröst er hluti af. Rannsóknin sem hófst árið 2022 skoðar áhrif skapandi greina á nýsköpun í landsbyggðum en henni lýkur nú í sumar.

Í greininni er verkefnið „Jólasveinar eru úr Dölum" greint sem skipulegt byggðaþróunarverkefni. Bændurnir á Erpsstöðum nýta þar gamalt ljóð og íslenskar þjóðsögur til að skapa samfélagsverkefni. Því er ætlað að efla ímynd Dalabyggðar og bjóða upp á sanngildi í ferðaþjónustu. Dregið er fram hvernig DalaAuður, sem er átaksverkefni Brothættra byggða hjá Byggðastofnun, hefur stuðlað að öflugri uppbyggingu í Dalabyggð frá árinu 2022. Verkefnið var sett á laggirnar sem fjögurra ára átaksverkefni.

Hjónin á Erpsstöðum, Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir, hafa þróað búið úr hefðbundnum kúabúskap yfir í vinsælan áfangastað. Þar er framleiddur ís og sveitaskyr, auk þess sem boðið er upp á afþreyingu og handverk. Þannig laða þau að þúsundir gesta á ári.

Í greininni eru þrjár lykilniðurstöður IN SITU rannsóknarinnar undirstrikaðar:  

  • Mikilvægi samvinnu innan samfélaga
  • Hlutverk skapandi frumkvöðla sem breytingavalda
  • Tengsl menningar og nýsköpunar sem drifkrafts byggðaþróunar

IN SITU bendir á að líta megi á afskekkt svæði sem vettvang tækifæra þar sem menningararfur, sögur og staðbundin þekking geta orðið grunnur að sjálfbærri framtíð.

Anna Hildur leggur nú stund á doktorsrannsókn þar sem hún skoðar frekar tengsl skapandi frumkvöðla og menningarinnviða í fámennum byggðum.

Hér má lesa greinina í Contexto í heild sinni (bls. 59 - 69)