Jafnréttisdagar háskólanna 29. janúar 2021

Jafnréttisdagar háskólanna

Vikuna 1.-5. febrúar verða haldnir Jafnréttisdagar, árlegt fræðsluátak háskólanna á Íslandi. Að þessu sinni eru Jafnréttisdagarnir eingöngu rafrænir. Á Jafnréttisdögum er tvinnað saman ýmsum víddum jafnréttis og femínisma, ásamt því að setja málefni fjölbreytileika, forréttinda, þöggunar, jafnréttis, valds og mismununar undir smásjána. Dagskráin í ár spannar yfir tug viðburða og má nálgast hana í heild sinni á facebook síðu Jafnréttisdaga, www.facebook.com/jafnrettisdagar.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta