Íslensk menningarstjórnun í sviðsljósi sænskra fjölmiðla
1. júní 2026

Íslensk menningarstjórnun í sviðsljósi sænskra fjölmiðla

Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri menningarstjórnunar við Háskólann á Bifröst, var nýverið í viðtali við sænska dagblaðið Svenska Dagbladet um fjármögnun menningarmála á Norðurlöndum og stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði. Viðtalið birtist í tengslum við umfjöllun blaðsins um nýja skýrslu sem sýnir að Ísland ver hlutfallslega meira opinberu fé til menningarmála en önnur Norðurlönd.

Í viðtalinu bendir Njörður á að skýringar á þessari stöðu séu bæði sögulegar og menningarlegar. Á Íslandi hafi menning lengi verið tengd hugmyndum um sjálfstæði, fullveldi og varðveislu tungumálsins. Því hafi ríkt víðtæk pólitísk samstaða um að fjármagna menningarstarf með opinberu fé og byggja upp öfluga menningarinnviði þrátt fyrir smæð landsins.

Njörður vekur jafnframt athygli á því að Íslendingar taki almennt virkan þátt í menningarlífi. Rannsóknir sýni að þeir sæki oftar leikhús, kvikmyndahús og söfn en íbúar margra annarra landa og að bókaútgáfa sé mjög öflug miðað við fólksfjölda. Hann leggur áherslu á að menning sé ekki aðeins kostnaðarliður heldur mikilvægur þáttur í sjálfsmynd þjóðarinnar og samfélagslegri innviðauppbyggingu.

Umfjöllunin í Svenska Dagbladet varpar ljósi á alþjóðlegan áhuga á íslenskri menningarstefnu og þeim samfélagslegu og sögulegu þáttum sem hafa mótað sterka stöðu menningar á Íslandi.

Væntanleg bók um norræna menningarstefnu

Njörður er jafnframt einn ritstjóra væntanlegrar bókar, Nordic Cultural Policy Reframed, sem kemur út síðar á árinu hjá Palgrave Macmillan. Bókin fjallar um þróun og breytingar í menningarmálum á Norðurlöndum.

Nánari upplýsingar