21. febrúar 2017
Innheimtufulltrúi óskast
Spennandi starf í einstöku umhverfi og heillandi samfélagi.
Laust er til umsóknar starf innheimtufulltrúa við Háskólans á Bifröst. Innheimtufulltrúi heyrir undir fjármálastjóra.
Starfssvið
- Útsending reikninga og eftirfylgni með þeim
- Bókun á greiðslu reikninga
- Innheimta reikninga
- Samskipti við innheimtufyrirtæki
- Færsla bókhalds
- Utanumhald viðskiptamannabókhalds
- Annað sem til fellur
Hæfni og menntunarkröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
Um er að ræða fullt starf á Bifröst og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Búseta á Bifröst eða í Borgarfirði er æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars nk. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá og kynningarbréf. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun.
Umsóknir og fyrirspurnir um starfið skal senda á netfangið fjarmalastjori@bifrost.is.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta