Hluti IN SITU hópsins í heimsókn hjá Páli Guðmundssyni listamanni í Húsafelli

Hluti IN SITU hópsins í heimsókn hjá Páli Guðmundssyni listamanni í Húsafelli

2. júní 2025

In SITU rannsóknin í brennidepli í Borgarnesi

Dagana 2.–4. júní fer fram alþjóðlegur verkefnafundur Horizon Europe rannsóknaverkefnisins IN SITU í Hjálmakletti í Borgarnesi. Verkefnið sem hófst sumarið 2022 miðar að því að rannsaka áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun í landsbyggðum Evrópu. Háskólinn á Bifröst er einn af samstarfsaðilum verkefnisins og tekur á móti um 30 fulltrúum frá 13 rannsóknastofnunum í 12 löndum. Vesturland er ennfremur eitt af sex tilraunsvæðum í þessari yfirgripsmiklu rannsókn.

Fundurinn hófst með ávarpi frá Sigursteini Sigurðssyni, menningarfulltrúa Vesturlands, sem benti á mikilvægi þess að efla menningu og nýsköpun á landsbyggðinni og þar með byggðafestu en um leið að skapa alþjóðleg tengsl í þeim tilgangi. Yfirskrift fundarins er “Monitoring, Resilience, and Sustainability”, og markmið hans er að efla samstarf milli aðila verkefnisins, samræma rannsóknaniðurstöður og skipuleggja næstu skref í vinnu sem hófst um mitt ár 2022 og lýkur sumarið 2026.

Á dagskránni eru fjölbreyttir vinnuhópar og vinnustofur þar sem lögð er áhersla á að þróa aðferðir, greina gögn og setja fram stefnumótandi tillögur sem styðja við menningu og nýsköpun í landsbyggðum. Einnig er fjallað um miðlun niðurstaðna, kynjahlutverk, stefnumótun til framtíðar og sjálfbærni verkefna. Meðal þátttakenda eru sérfræðingar í menningar- og nýsköpunarmálum, fræðimenn og aðilar sem vinna að stefnumótun innan Evrópusambandsins. Erna Kaaber hefur leitt IN SITU rannsóknina á Vesturlandi undanfarin þrjú ár sem hefur meðal annars falist í menningarkortlagningu. Með henni í rannsóknateyminu eru Anna Hildur Hildibrandsdóttir formaður rannsóknaseturs skapandi greina og Vífill Karlsson sem leiðir rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum.

Áður en fundurinn hófst lagði hópurinn lykkju á leið sína og heimsótti listamanninn Pál í Húsafelli, sem lék fyrir gesti á steinhörpurnar sínar og önnur hljóðfæri smíðuð úr steinum og rabbabörum. Þá var einnig komið við í Reykholti þar sem þátttakendur fengu fróðlegan fyrirlestur um Snorra Sturluson og íslenskar bókmenntir. Í Borgarnesi mun hópurinn heimsækja Landnámssetrið og aðrar menningarstofnanir í bænum, og að fundi loknum hyggst hluti hópsins ferðast áfram um Vesturlandið og kynna sér menningu og náttúru svæðisins.

Nánari upplýsingar um IN SITU verkefnið má finna á insituculture.eu