IN SITU rannsóknaverkefninu lokið
1. júlí 2026

IN SITU rannsóknaverkefninu lokið

Evrópska rannsóknaverkefninu IN SITU, sem fjallar um áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun og þróun á landsbyggðum, er nú formlega lokið. Verkefnið hefur staðið yfir í fjögur ár og leiddu Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Erna Kaaber íslenska hluta þess fyrir hönd Háskólans á Bifröst en Vesturland var eitt af sex tilraunasvæðum í Evrópu.

Á Vesturlandi var unnið með aðferðir menningarkortlagningar og þátttökurannsókna til að skoða hvernig menning, staðbundin þekking, skapandi greinar og óformleg tengsl geta haft áhrif á nýsköpun, samfélagsþróun og framtíðarsýn byggða. Alls komu á annað hundrað manns að rannsókninni með einum eða öðrum hætti á Íslandi en verkefnið leiddi saman fræðimenn, sérfræðinga, listamenn, menningarframleiðendur, sveitarfélög og skapandi frumkvöðla víða um Evrópu. Sérstakar þakkir fá Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, fyrir ómetanlegt liðsinni við verkefnið, Þorgrímur og Helga á Erpsstöðum/Rjómabúinu Erpsstöðum og Signý, Agnes og Rannveig í Rými-X verkefninu í Borgarnesi. Verkefni þeirra voru tekin sérstaklega fyrir sem tilvik í rannsókninni og urðu mikilvægur hluti þeirrar þekkingarsköpunar sem fór fram. Einnig á Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri DalaAuðs, sem sprettur úr stuðningsverkefni Byggðastofnunar við brothættar byggðir, þakkir skyldar fyrir upplýsingagjöf og aðstoð. 

Niðurstöður IN SITU hafa meðal annars orðið innblástur að tillögu um Menningarsjá í Hvítbók um byggðamál, sem birtist nýverið í samráðsgátt stjórnvalda. Menningarsjá er hugsuð sem verkfæri til að gera menningarstarfsemi, menningarinnviði, skapandi greinar, menningararf og staðbundna þekkingu sýnilegri um land allt. Slíkt verkfæri getur jafnframt orðið lifandi þekkingarinnviður sem styður rannsóknir, lýðræðislegt samráð, stefnumótun og ákvarðanatöku.

Verkefninu var stýrt af Nancy Duxbury, leiðandi fræðimanni á sviði menningarkortlagningar og skapandi þróunar utan stórborga. Hún hefur leitt IN SITU af mikilli fagmennsku og byggt upp öflugt alþjóðlegt samstarf á sviði menningar, nýsköpunar og staðbundinnar þróunar.

Á IN SITU-vefsíðunni má finna skrif, skýrslur og önnur gögn sem hafa orðið til í verkefninu. Vefurinn verður áfram virkur og þar mun birtast frekara efni á næstu misserum. 

IN SITU útskýrt í stuttumáli