IN SITU lokaráðstefna
Skráning er nú hafin á lokaráðstefnu IN SITU, sem fer fram í Valmiera í Lettlandi dagana 11.–13. maí 2026. Í boði er sérstakur afsláttur fyrir þá sem skrá sig fyrir 12. mars, en skráningarfrestur rennur út 13. apríl.
IN SITU er fjögurra ára rannsóknarverkefni sem Háskólinn á Bifröst er samstarfsaðili að ásamt 12 öðrum evrópskum háskólum og rannsóknastofnunum. Rannsóknin hefur beinst að því að skoða áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun í landsbyggðum. Anna Hildur Hildibrandsdóttir hefur farið fyrir verkefninu fyrir hönd Háskólans á Bifröst ásamt Ernu Kaaber sem er aðalrannsakandi í íslenska hluta þess.
Ráðstefnan er opin öllum og þátttaka er ekki bundin við fyrirlesara. Fólk úr ólíkum geirum er hvatt til að koma, taka þátt í umræðum, tengjast alþjóðlegum samstarfsaðilum og kynnast rannsóknum og starfsháttum sem móta skapandi vistkerfi utan þéttbýlis.
Dagskráin verður fjölbreytt og inniheldur, auk erinda og kynninga, lykilfyrirlestra og sameiginlegar umræður þar sem fjallað verður um ný viðfangsefni á þessu sviði. Þá verða einnig vettvangsferðir þar sem gestir kynnast líflegu menningarlífi og skapandi starfi í Valmiera, auk óformlegra samverustunda sem skapa tækifæri til tengslamyndunar. Allir dagskrárliðir eru innifaldir í skráningargjaldi.
Ráðstefnan býður upp á þrjá daga af miðlun, nýrri innsýn og alþjóðlegum tengslum.
Smelltu hér til að skoða dagskrána, kynna þér fyrirlesara og skrá þig á ráðstefnuna
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta