Hvað eiga samsæriskenningar og samskiptastjórnun sameiginlegt?
29. maí 2025

Hvað eiga samsæriskenningar og samskiptastjórnun sameiginlegt?

Samskiptastjórnun, ný meistaranámslína undir fagstjórn dr. Eiríks Bergmanns, mun hefja göngu sína í haust. Um er að ræða framsækið og þverfaglegt nám sem á sér enga hliðstæðu á landinu. Fjöldi reyndra sérfræðinga á sviðinu munu koma til með að miðla þekkingu sinni og reynslu til nemenda. Lokaverkefnið er með nýstárlegu sniði, en það er hagnýtt ráðgjafaverkefni sem byggir á raunverulegum áskorunum úr atvinnulífinu. Þannig fá nemendur einstakt tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og raunverulegar aðstæður í starfsemi samskiptastjóra.

Eiríkur hefur haft í ýmsu að snúast undanfarið. Það sem af er ári hefur hann flutt sex alþjóðlega fyrirlestra í fimm löndum; Búlgaríu, Ítalíu, Spáni og Austurríki. Hann er nú nýkominn heim frá Kaupmannahöfn þar sem hann flutti erindi á ráðstefnu samstarfsnetsins CONNOR (þverfagleg samtök norrænna fræðimanna um rannsóknir á samsæriskenningum) en Eiríkur er á meðal stofnenda þess. Í erindi sínu fjallaði hann um samsæriskenningar sem pólitískt vopn og rakti þróunina sem orðið hefur í þeim efnum. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti félagsvísindadeildar, flutti einnig erindi á ráðstefnunni sem var vel sótt.

Nýverið kom út alþjóðleg fræðibók eftir Eirík, Weaponizing Conspiracy Theories, gefin út af Routledge. Bókin fjallar fyrst og fremst um þá kenningu að á tímum þegar sannleikur og skáldskapur renna saman beiti leiðtogar þjóðernispopúlista samsæriskenningum sem pólitísku vopni. Í bókinni er greint hvernig umræða, sem ætlað er að skapa ótta, hefur færst af jaðri stjórnmálanna og sífellt lengra inn í meginstraum samfélagsumræðunnar.  

Á síðasta ári sendi Eiríkur frá sér bókina Óvæntur ferðafélagi – minningabók, þar sem hann segir frá óþægilegum kynnum sínum af severe tinnitus disorder (eyrnasuði) og leiðir lesandann með sér í gegnum lífsferðalag frá ungdómsárum til þroska. Óhætt er að fullyrða að Eiríkur sýni á sér nýja og óvænta hlið í þessari áhugaverðu bók.

Eiríkur heldur úti vinsælu hlaðvarpi ásamt Huldu Þórisdóttur, prófessor í stjórnmálasálfræði við Háskóla Íslands. Hlaðvarpið nefnist Skuggavaldið og þar fjalla þau Eiríkur og Hulda á fræðilegan og skemmtilegan hátt um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Má þar nefna sem dæmi Qanon-samsæriskenninguna, Illuminati-goðsögnina, og Kennedy-bölvunina. Ýmsar samsæriskenningar hafa í gegnum tíðina vakið athygli og þótt forvitnilegar. Áhugi almennings fer síst minnkandi í óstöðugleika nútímans og nýjar samsæriskenningar spretta reglulega upp. En hvað ætli samsæriskenningar og samskiptastjórnun eigi sameiginlegt?