Guðmundur Ingi Guðbrandsson, vinnumarkaðsráðherra (t.v.) og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins (lengst t.h.) ásamt styrkþegum. Kartrín og Arney standa næst ráðherranum.

23. febrúar 2024

Hlutu rannsóknarstyrk

Rannsókn Arneyjar Einarsdóttur, prófessors við HB og Katrínar Ólafsdóttur, dósents við HR, hlaut nýlega liðlega 3 m.kr styrk úr vinnuverndarsjóði.

Rannsóknin snýr að áhrifum sjálf­virkni­væðing­ar og fjar­vinnu á starfstengda kuln­un, starfstengd viðhorf, upp­lif­un og hegðun í formi áforma um starfs­lok, auk tengsla við fjar­vist­ir og starfs­manna­veltu.

Tilkynnt var um úthlutun úr vinnuverndarsjóði þann 21. febrúar sl., en alls fengu fjór­ar rannsókn­ir og eitt verk­efni styrk í þessari fyrstu út­hlut­un sjóðsins, sem komið var á laggirnar á síðasta ári.

Greint er frá þessu í til­kynn­ingu fé­lags- og vinnu­markaðsráðuneyt­is­ins.

Sjóður­inn er sam­starfs­verk­efni fé­lags- og vinnu­markaðsráðuneyt­is­ins og Vinnu­eft­ir­lits­ins. Mark­mið sjóðsins er að hvetja rann­sókn­ir á vett­vangi vinnu­vernd­ar og að betr­um­bæta vinnu­vernd á ís­lensk­um vinnu­markaði.

Aug­lýst verður aft­ur eft­ir um­sókn­um um styrki síðar á þessu ári.

Sjá frétt á vef Vinnueftirlitsins

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta