Haustönn 2026 verður sú fjölmennasta í sögu Háskólans á Bifröst
Næsta haust hefst fjölmennasta önn í sögu Háskólans á Bifröst, en þá munu fleiri nemendur stunda nám við skólann en nokkru sinni fyrr. Mikill vöxtur hófst árið 2024 þegar skólagjöld voru lögð niður. Heildarfjöldi umsókna fyrir komandi skólaár er 1.172. Það verður að teljast góður árangur í kjölfarið á mikilli umsóknasveiflu allt frá árinu 2024.
Viðskiptadeild stærst
Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst er stærsta viðskiptadeild landsins. Deildin hefur vaxið mikið á undanförnum árum, og býður upp á öflugt nám sem byggir á sterkum tengslum við atvinnulífið. Umsóknir þetta árið eru 704. Það sem vekur sérstaka athygli er gríðarlegur áhugi á framhaldsnámi, en 470 manns sóttu um meistaranám við deildina sem er tvöfaldur fjöldi umsókna í grunnám (234 umsóknir).
Nýtt nám í fjármálastjórnun slær í gegn
Forysta og mannauðsstjórnun heldur velli sem vinsælasta námsleiðin í meistaranámi líkt og undanfarin ár.
Nýtt meistaranám í fjármálastjórnun fær frábærar viðtökur og mætti svo miklum áhuga að færri komust að en vildu.
Lagadeild í sókn með nýrri námsleið
Lagadeildin sækir í sig veðrið og fjölgar umsóknum þar um 6% á milli ára (fer úr 124 í 132). Fjölgunina má fyrst og fremst rekja til nýrrar og spennandi námsleiðar í grunnnámi: grunn diplómu í leiðtoganámi í hafgæslu. Þróun þess náms hófst sem þverfaglegt samstarf milli Félagsvísindadeildar og Lagadeildar í nánu samstarfi við Landhelgisgæsluna og síðar Tækniskólann.
Það er því bjart fram undan á Bifröst. Skólinn iðar af lífi og hlakkar til að taka á móti stærsta nemendahópi í sögu skólans í haust.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta