Haukur Logi hlýtur framgang í stöðu prófessors
26. október 2026

Haukur Logi hlýtur framgang í stöðu prófessors

Haukur Logi Karlsson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við lagadeild Háskólans á Bifröst, samkvæmt niðurstöðu ytri dómnefndar um framgang og akademískt hæfi. Í nefndinni sitja dr. Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus, dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir lektor og Benedikt Bogason prófessor og hæstaréttardómari.   

Haukur Logi er deildarforseti lagadeildar, en hann tók við þeirri stöðu í ágúst 2025.  Hann hóf störf við lagadeildina í júní 2023 og hlaut framgang í stöðu dósents í janúar 2024. Áður en hann tók við stöðu deildarforseta lagadeildar var hann fagstjóri ML meistaranáms í lögfræði og eru sérsvið hans samkeppnisréttur, Evrópuréttur, stjórnskipunarréttur og almenn lögfræði.  

Áður en Haukur hóf störf hjá Bifröst hafði hann sinnt kennslu og rannsóknum við lagadeildir Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands. Hann starfaði sem lögfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel og hjá EFTA dómsstólnum í Lúxemborg. Þá var hann lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Haukur lauk BA gráðu árið 2006 og ML gráðu árið 2008 frá Háskólanum í Reykjavík. Hann lauk LLM gráðu í Evrópurétti frá Stockholms Universitet árið 2009, LLM gráðu með áherslu á réttarheimspeki árið 2013 frá European University Institute í Flórens á Ítalíu og doktorsgráðu í samkeppnisrétti frá sama skóla árið 2017.

Við óskum Hauki Loga innilega til hamingju með framganginn.