Fjölmennasta útskrift í sögu Háskólans á Bifröst
Aldrei í sögu Háskólans á Bifröst hefur annars eins fjöldi verið útskrifaður og síðastliðinn laugardag. Alls voru 279 háskólanemendur brautskráðir; 39 nemendur úr Háskólagátt, 65 úr grunnnámi og 175 úr meistaranámi. Ef litið er til deildaskiptingar þá brautskráðust alls 59 nemendur frá félagsvísindadeild, 25 frá lagadeild og 156 frá viðskiptadeild. Þar af voru 208 konur og 71 karl. Nálgast má nánari upplýsingar um brautskráninguna hér.

„Dagurinn er sannarlega sigurdagur fyrir ykkur, útskriftarefnin, hvert og eitt, og hann er uppskeruhátíð fyrir Háskólann á Bifröst,“ sagði dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor er hún ávarpaði útskriftarnemendur og aðra hátíðargesti. „ Við fögnum í dag árangrinum af starfi og ástundun undanfarinna missera. Tímabils sem vafalaust hefur markast af bæði áreynslu og ánægju, stundum svita og tárum, en ekki síður sigurtilfinningu þegar vel hefur gengið,“ sagði rektor.
Að vanda voru verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur. Hvatningarverðlaun hlutu Árdís Árnadóttir, Karen Jacobsen, Klara Ósk Elíasdóttir og Katrín Ýr Árnadóttir.
Útskriftarverðlaun fyrir Háskólagátt fengu Hrafnhildur Tinna Ólafsdóttir og Kristrós Erla Baldursdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir grunnnám fengu Svava Rós Guðmundsdóttir og Jenný Rebekka Jónsdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir meistaranám fékk Gylfi Gestsson.
Nöfn þeirra hafa þar með bæst við Bifrastarlista háskólans.
Í ræðu sinni fjallaði rektor um stöðu háskóla og vísinda sem samfélagseign. „Vísindi verða að þjóna samfélaginu. Þau eiga að stuðla að hagsæld, framþróun og velferð. Og það er einmitt í þessu jafnvægi, milli frelsis og ábyrgðar, sem styrkur akademíunnar felst.“ Ólína benti á að aðgengi að menntun er lykilstoð góðra samfélaga. „Þegar við ræðum gildi menntunar erum við í raun að ræða grundvöll samfélagsins. Menntun gerir okkur kleift að meta upplýsingar, greina rangfærslur og taka upplýstar ákvarðanir. Hún er óumdeilanleg forsenda efnahagslegrar þróunar og nýsköpunar. En menntun er einnig réttlætismál. Aðgengi að henni ákvarðar að miklu leyti hvaða tækifæri fólk hefur í lífinu. Ef aðgengi er skert eða ójafnt, eykst ójöfnuður. Þess vegna skiptir höfuðmáli að við horfum ekki aðeins á menntun sem tæki til hagvaxtar, heldur sem samfélagslegt verkefni.“

Tónlistarfólkið Jón Þór Sigmundsson, Edda María Jónsdóttir og Isobel Líf Díaz, sem öll koma frá Borgarbyggð og Borgarnesi, fluttu valin sönglög í upphafi dagskrár og milli atriða.
Brautskráningin fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi þann 13. júní 2026 og var streymt beint frá viðburðinum á vef háskólans. Einnig má nálgast upptöku af útskriftarhátíðinni á Youtube.







Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta