Frá vinstri: Haukur Logi Karlsson, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Guðrún Johnsen
12. febrúar 2026Aldrei fleiri útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst
Það var hátíðleg stund í dag þegar útskriftarefni tóku við prófskírteinum sínum í Hjálmakletti. Alls voru 213 háskólanemendur brautskráðir eða 46 úr grunnnámi og 167 úr meistaranámi. Ef litið er til deildaskiptingar þá brautskráðust alls 42 nemendur frá félagsvísindadeild, 24 frá lagadeild og 147 frá viðskiptadeild. Þar af voru 155 konur og 58 karlar. Nálgast má nánari upplýsingar um brautskráninguna hér.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir starfandi rektor ávarpaði útskriftarnemendur og aðra hátíðargesti. Í ávarpi sínu þakkaði hún Margréti Jónsdóttur Njarðvík, fyrrverandi rektor, fyrir góð störf í þágu skólans. Ólína ávarpaði nemendur og minnti þau á að útskrift er þeirra dagur, stund og fögnuður. Síðustu vikur námsferilsins hefðu vissulega verið erfiðir fyrir skólann og nemendur. Skólinn hefði á síðustu sex árum náð stórstígum árangri á sviði gæðamála, námsframboði og nýsköpunar. Dagurinn í dag sé gleðidagur og því fylgi að áhyggjur víki fyrir fögnuði.
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, var sérstakur gestur hátíðarinnar og flutti hann ávarp sitt í upphafi athafnarinnar þar sem hann óskaði útskriftarefnum innilega til hamingju með áfangann. Hann sagðist alla tíð eftir nám sitt á Bifröst hafa leitast við að haga sínum störfum í samræmi við þau góðu gildi sem skólinn kenndi honum. Gildi ábyrgðar, frumkvæði, samvinnu og þjónustu við samfélagið. Við nemendur sagði hann að nám er mikilvægt, Nú hafi þau lokið mikilvægum áfanga en menntun ljúki þó aldrei. Þá sagði hann að „Sterkt og gott orðspor getur orðið ykkar verðmætasta eign í lífinu.“
Að vanda voru verðlaun veitt fyrir framúrskarandi námsárangur. Hvatningarverðlaun hlutu Ásdís Hanna Pálsdóttir, Katrín Ýr Árnadóttir og Herdís Hulda Guðmannsdóttir.
Útskriftarverðlaun fyrir grunnnám fengu Jóhannes Hjálmar Smárason, Lilja Dögg Óladóttir og Ingibjörg Birna Ársælsdóttir. Útskriftarverðlaun fyrir meistaranám fengu Ingibjörg Laila Arnarsdóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir og Elva Tryggvadóttir.
Nöfn þeirra hafa þar með bæst við Bifrastarlista háskólans.
Eins og síðustu ár, flutti Soffía Björg Óðinsdóttir söng- og tónlistarkona valin sönglög í upphafi dagskrár og milli atriða.
Útskriftarræðu fyrir hönd grunnnema flutti Agla Sól Hafdísardóttir, BS í viðskiptafræði. Agla sagði í ræðu sinni að nemendur ljúki nú mikilvægu ferðalagi í lífinu. Nemendur Háskólans á Bifröst eigi sér ólíkan bakgrunn en það sem sameini hópinn sé viljinn til að vaxa, viljinn til að læra og viljinn til að taka þátt. Hún sagðist hafa lært það á sínum námsferli hve sterk tengsl myndast í gegnum fjarnám. „Það er það sem gerir Háskólann á Bifröst svo einstakan. Þrátt fyrir að við séum út um allt, allan heim og lifum ólíku lífi þá myndast eitthvað sérstakt. Bifrastarandinn er raunverulegur. Hann birtist í samstöðunni, tæknivandamálum á Teams og endalausum hópverkefnum og hvernig við stöndum saman þegar á reynir.“
Útskriftarræðu fyrir hönd meistaranema flutti Elva Tryggvadóttir, MCM í áfallastjórnun. Hún kom inn á í ræðu sinni að sérstaða Bifrastar sé að háskólinn er leiðandi í sveigjanlegu námi og fjarnámi. Slíkt nám krefst aga skipulags og seiglu fyrir nemendur. “Námið hefur verið reynsla sem hefur ekki aðeins kennt fræði heldur líka mótað og stuðlað að vexti okkar sem einstaklingar”. Náminu hafi fylgt mikil vinna, fórnir, efasemdir og sigrar og í dag skuli staldra við, draga djúpt andann og leyfa stolti að njóta sín.
Útskriftarhátíðin fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi þann 14. febrúar 2026, og var streymt beint frá viðburðinum á vef háskólans. Þar má einnig nálgast upptöku af útskriftarhátíðinni.
Myndasafn
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta