Háskólinn á Bifröst í samstarf um doktorsnám við UOC
29. október 2026

Háskólinn á Bifröst í samstarf um doktorsnám við UOC

Háskólinn á Bifröst og Universitat Operta de Catalunya (UOC) á Spáni hafa gert með sér samkomulag sem leggur grunn að samstarfi á sviði doktorsnáms, rannsókna, þróunar og nýsköpunar. Samningurinn felur í sér tækifæri til að auka samstarf fræðafólks, nemenda og sérfræðinga og styrkja alþjóðlegt tengslanet beggja stofnana með fjölbreyttum samstarfsverkefnum sem styðja við rannsóknir, þekkingasköpun og þróun nýrra lausna á sviðum sem eru báðum háskólum mikilvæg. 

Rektorar háskólanna tveggja, dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor Háskólans á Bifröst og dr. Àngels Fitó Bertran, rektor UOC undirrituðu samkomulagið á fundi OpenEU háskólanetsins sem nú stendur yfir í Haag. 

Meðal þeirra verkefna sem samningurinn opnar á eru: 

  • Samhandleiðsla doktorsnema og sameiginleg leiðsögn doktorsverkefna með það að markmiði að efla vísindalegt samstarf og hreyfanleika doktorsnema milli stofnananna
  • Sameiginlegt skipulag námskeiða, málþinga, ráðstefna og annarra fræðaviðburða
  • Skipti á sérfræðingum, rannsakendum og tæknifólki, auk sameiginlegrar þjálfunar og stuðnings
  • Rannsóknar- og nýsköpunarverkefni á áherslusviðum beggja háskóla
  • Miðlun og hagnýting rannsóknarniðurstaðna
  • Efling upplýsingatækni og stafrænnar tækni í háskólanámi og símenntun
  • Samstarf um þróun gæðamenntunar og símenntunarúrræða

"Undirritun samningsins markar mikilvægt skref í alþjóðlegri stefnu Háskólans á Bifröst. Hún styrkir tengsl skólans við einn af leiðandi fjarnámsháskólum Evrópu" segir dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst. "Hér opnast ný tækifæri fyrir fræðafólk og nemendur beggja háskóla til samstarfs um doktorsnám, en einnig til námsþróunar háskólamenntunar og eflingar rannsókna," bætir hún við. 

Universitat Oberta de Catalunya (UOC) var stofnaður árið 1995 og er einn af frumkvöðlum Evrópu á sviði stafrænnar háskólamenntunar og fjarnáms. Háskólinn þjónar tugþúsundum nemenda um allan heim og hefur byggt upp öflugt alþjóðlegt rannsóknarumhverfi á sviðum stafrænnar menntunar, tækni og nýsköpunar.

Háskólinn á Bifröst sem áður var Samvinnuskólinn, stofnaður árið 1918, hefur um árabil verið í fararbroddi í þróun stafræns fjarnáms á Íslandi og starfar nú fyrst og fremst sem fjarnámsháskóli. Skólinn leggur ríka áherslu á gæðamenntun, sveigjanlegt námsframboð, rannsóknir og alþjóðlegt samstarf á sviði viðskiptafræði, lögfræði og félagsvísinda.

Myndasafn