Háskólahátíð Háskólans á Bifröst 14. júní
6. júní 2025

Háskólahátíð Háskólans á Bifröst 14. júní

Háskólahátíð Háskólans á Bifröst verður í Hjálmakletti í Borgarnesi, laugardaginn 14. júní, kl. 11:00 til 13:00. Alls munu 182 nemendur verða brautskráðir á hátíðinni; 74 nemendur úr grunnnámi, 78 úr meistaranámi og 30 nemendur úr háskólagátt Háskólans á Bifröst. Ef litið er til einstakra deilda háskólans, þá verður samtals 88 nemandi brautskráður úr viðskiptadeild, 14 úr lagadeild og 49 úr félagsvísindadeild. 

Hátíðardagskráin er með áþekku sniði og áður. Framkvæmdastýra kennslu og þjónustu, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, setur háskólahátíðina og að því búnu ávarpar Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra útskriftarefni og gesti. Enn fremur flytja nemendur f.h. bæði grunnnema og meistaranema ávörp og afhent verða verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Að lokum mun rektor háskólans, Margrét Jónsdóttir Njarðvík ávarpa útskriftarefnin. 

Soffía Björg Óðinsdóttir söng- og tónlistakona flytur valin sönglög í upphafi dagskrár og á milli atriða. 

Unnt verður að fylgjast með útskriftarhátíðinni í beinu streymi hér á háskólavefnum og á Facebook síðu háskólans.

Sjá dagskrá útskriftarhátíðarinnar