Háskólahátíð Háskólans á Bifröst 14. febrúar
Háskólahátíð Háskólans á Bifröst verður í Hjálmakletti í Borgarnesi, laugardaginn 14. febrúar, kl. 10:00 til 13:00. Alls munu 213 nemendur verða brautskráðir á hátíðinni, 46 nemendur úr grunnnámi og 167 úr meistaranámi. Ef litið er til einstakra deilda háskólans, þá verða samtals 147 nemendur brautskráðir úr viðskiptadeild, 24 úr lagadeild og 42 úr félagsvísindadeild.
Hátíðardagskráin er með áþekku sniði og áður. Framkvæmdastýra kennslu og þjónustu, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, setur háskólahátíðina og að því búnu mun rektor háskólans, Margrét Jónsdóttir Njarðvík ávarpa útskriftarefnin. Næst mun Jón Þór Ólafsson, forstjóri Öskju flytja erindi. Enn fremur flytja nemendur f.h. bæði grunnnema og meistaranema ávörp og afhent verða verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur.
Soffía Björg Óðinsdóttir söng- og tónlistakona flytur valin sönglög í upphafi dagskrár og á milli atriða.
Unnt verður að fylgjast með útskriftarhátíðinni í beinu streymi hér á háskólavefnum og á Facebook síðu skólans.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta