Háskóladagurinn 2026
Háskóladagurinn 2026 fer fram í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar frá kl. 12:00 til 15:00. Hann verður haldinn í þremur háskólum á höfuðborgarsvæðinu - Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Við hjá Bifröst verðum með kynningarbás í öllum þremur háskólunum.
Á landsbyggðinni verður Háskóladagurinn haldinn á þremur stöðum - í Vestmannaeyjum 3. mars, Ísafirði 5. mars og á Akureyri 11. mars. Háskólinn á Bifröst verður á öllum stöðunum.
Allir háskólar landsins standa saman að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna fjölbreytt námsframboð sem er í boði hjá háskólum á Íslandi.
Við hvetjum alla sem langar að kynna sér það sem er í boði hjá háskólum landsins að kíkja við. Þar verða allir tilbúnir að spjalla og fræða gesti og gangandi um námsframboð sinna skóla.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta