Magnús Árni Skjöld Magnússon

19. nóvember 2026

Grein Magnúsar Skjöld birt í the Loop, vefriti ECPR

Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst og Jean Monnet Chair, hefur birt grein í The Loop, vefriti European Consortium for Political Research (ECPR), þar sem hann færir rök fyrir því að Evrópusambandið þurfi að bjóða ríkari Evrópuríkjum aðra leið til aðildar.

Greinin, sem ber heitið Why the EU cannot give up on enlargement to richer states, birtist 19. nóvember og er sú 44. í greinaröð The Loop um álitamál tengd stækkun Evrópusambandsins.

Fullveldissjónarmið vegi þungt

Magnús tekur niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi 29. ágúst síðastliðinn sem dæmi um þá stöðu að efnahagslega sterk og stöðug lýðræðisríki í Evrópu kjósi að standa utan sambandsins. Í atkvæðagreiðslunni höfnuðu 52,8% kjósenda því að aðildarviðræður við ESB yrðu teknar upp að nýju.

Hann bendir einnig á Noreg, Bretland og Sviss og færir rök fyrir því að áhyggjur af fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti, fremur en andstaða við Evrópusamstarf, ráði þar miklu.

Fjallar um aðra leið til aðildar

Að mati Magnúsar er núverandi aðildarferli ESB einkum sniðið að ríkjum sem þurfa á efnahagslegri og stofnanalegri aðlögun að halda, svo sem ríkjum á Vestur-Balkanskaga, Úkraínu og Moldóvu. Það henti síður ríkjum sem þegar búa við háar tekjur og öfluga innviði.

Hann leggur því til að Evrópusambandið bjóði aðra leið til fullrar aðildar, þar sem samið yrði um fáar, skýrt afmarkaðar og varanlegar undanþágur sem festar yrðu í aðildarsamningi.

Greinina má lesa í heild á vef The Loop.