Græn nýsköpun, nýir markaðir og hringrásarhagkerfið – kynningarviðburður
1. september 2026

Græn nýsköpun, nýir markaðir og hringrásarhagkerfið – kynningarviðburður

Háskólinn á Bifröst býður til kynningarviðburðar um græna frumkvöðlastarfsemi, hringrásarhagkerfið og ný markaðstækifæri í Ás, ráðstefnusal á Center Hotel Miðgarði, Laugavegi 120, þriðjudaginn 8. september. Á viðburðinum verður sjónum meðal annars beint að því hvernig frumkvöðlastarf og nýsköpun geta stuðlað að sjálfbærari viðskiptaháttum og þróun nýrra markaða.

Dr. Julia Fehrer frá University of Auckland á Nýja-Sjálandi verður gestur viðburðarins og flytur erindið Entrepreneurship and Market Shaping for Circularity. Þar mun hún fjalla um tengsl frumkvöðlastarfs, markaðsmótunar og hringrásarhagkerfisins.

Hlynur Finnbogason frá Háskólanum á Bifröst kynnir Erasmus+ samstarfsverkefnið Young Green Entrepreneurship Ecosystem (YOUNGREENTECO), markmið þess og helstu viðfangsefni. Verkefnið miðar að því að efla þekkingu og hæfni ungs fólks á sviði grænnar frumkvöðlastarfsemi og byggja upp alþjóðlegt stuðnings- og samstarfsnet fyrir unga frumkvöðla.

Alþjóðlegt samstarf um græna frumkvöðlastarfsemi

YOUNGREENTECO byggir á samstarfi háskóla og annarra samstarfsaðila og er ætlað að auðvelda ungum frumkvöðlum að þróa hugmyndir sínar og takast á við áskoranir tengdar sjálfbærni. Áhersla er meðal annars lögð á miðlun þekkingar og reynslu, tengslamyndun og samstarf milli frumkvöðla, leiðbeinenda, sérfræðinga og annarra hagaðila.

Markmiðið er að skapa umhverfi þar sem ungir grænir frumkvöðlar geta þróað hugmyndir sínar og öðlast þekkingu og tengsl sem nýtast þeim við að byggja upp sjálfbær verkefni og fyrirtæki.

Kynningarviðburðurinn 8. september gefur gestum tækifæri til að kynnast verkefninu og samstarfsvettvangi þess, auk þess að fá innsýn í alþjóðlega umræðu um græna nýsköpun, hringrásarhagkerfið og þróun nýrra markaða.

Viðburðurinn fer fram þriðjudaginn 8. september 2026, kl. 9:00 – 11:00, í Ás, ráðstefnusal á Center Hotel Miðgarður, Laugavegi 120

Aðgangur er ókeypis en óskað er eftir skráningu.

Skráðu þig hér

Fylgja viðburðinum á Facebook