Framúrskarandi námsárangur og hvatningaverðlaun
Það var hátíðleg stund þegar útskriftarnemar Háskólans á Bifröst tóku við prófskírteinum sínum við brautskráningarathöfn skólans í Hjálmakletti í Borgarnesi laugardaginn 13. júní 2026. Alls voru 279 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst úr Háskólagátt, grunnnámi og meistaranámi við félagsvísindadeild, lagadeild og viðskiptadeild.
Að venju voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur.
Hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaun eru veitt þeim nemendum sem voru í fullu námi á vorönn 2026 og náðu hæstu meðaleinkunn í sinni deild. Hvatningaverðlaun hlutu: Klara Ósk Elíasdóttir – Skapandi greinar (Félagsvísindadeild), Katrín Ýr Árnadóttir – Viðskiptalögfræði (Lagadeild), Árdís Árnadóttir – Viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði (Viðskiptadeild), Karen Jacobsen – Viðskiptafræði með áherslu á samfélagsmiðlamarkaðssetningu (Viðskiptadeild)
Verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn við brautskráningu frá Háskólagátt hlutu:

Hrafnhildur Tinna Ólafsdóttir

Kristrós Erla Baldursdóttir
Verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn við brautskráningu á félagsvísindadeild

Pálmi Sigurðsson – BA í öryggisfræði og almannavörnum

Sandra Pétursdóttir – MCM í menningarstjórnun
Verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn við brautskráningu á lagadeild

Jenný Rebekka Jónsdóttir – BS í viðskiptalögfræði

Bára Björk N. Ingibergsdóttir – MBL í viðskiptalögfræði
Verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn við brautskráningu á viðskiptadeild

Svava Rós Guðmundsdóttir – BS í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði

Gylfi Gestsson – MLM í forystu og mannauðsstjórnun
Háskólinn óskar öllum brautskráðum nemendum innilega til hamingju með áfangann og verðlaunahöfum sérstaklega til hamingju með framúrskarandi árangur í námi.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta