
Framgangur í stöðu prófessors
Einar Svansson hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst samkvæmt niðurstöðu ytri dómnefndar, en hana skipuðu þau Dr. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild HÍ, Benedikt Bogason, prófessor við lagadeild HÍ og Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, dósent við viðskiptafræðideild HÍ.
Einar hefur starfað hjá Háskólanum á Bifröst frá árinu 2007 sem rannsakandi og háskólakennari. Rannsóknaráherslur Einars hafa mestmegnis verið á fræðasviðum opinnar nýsköpunar, stjórnskipulags og starfsumhverfis fyrirtækja af öllu tagi, norrænnar stjórnunar og forystu, en einnig á sviði ferðaþjónustu og verslunar.
Einar kenndi einnig í 10 ár við Háskólann í Reykjavík og 6 ár við Háskóla Íslands og þá hefur hann verið gestakennari í Finnlandi, Hollandi Þýskalandi, Austurríki, Sviss og Rúmeníu.
Einar lauk tveimur MS gráðum við Háskóla Íslands árið 2008, annars vegar í stjórnun og stefnumótun og hins vegar í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Þá stundaði hann doktorsnám í nýsköpun í þjónustu (Service Innovation) við háskólann í Exeter. Sérhæfing Einars spannar því breitt svið innan stjórnunar- og þjónustufræða eða allt frá forystu og nýsköpun að gæðastjórnun og ferðaþjónustu.
Einar hefur einnig langa reynslu úr íslensku atvinnulífi og var m.a. forstjóri FISK Seafood í áratug á uppgangsárum Kaupfélags Skagfirðinga 1987-1996 og var líka forstjóri FH á Húsavík um fjögurra ára skeið 1996-2000 og beitti sér þar fyrir mótun fyrstu umhverfisstefnu í íslenskum sjávarútvegi. Einar hefur setið í tugum stjórna íslenskra fyrirtækja og má nefna Fjárfestingarbanka Atvinnulífsins og Iceland Seafood International. Einar var einnig um fimm ára skeið stjórnunarráðgjafi hjá ParX, IBM business partner í eigu Nýherja, nú Origo. Auk þess hefur Einar stutt dyggilega við frumkvöðlastarf í gegnum tíðina til dæmis með ráðgjöf og með kennslu og handleiðslu í Innovit/Klak og matsstörfum um 500 viðskiptahugmynda hjá RANNÍS og Loftslagssjóði. Einar rekur í hjáverkum ásamt konu sinni Dr. Sigrúnu Lilju Einarsdóttur vefverslunina KindArt með sölu eigin listsköpunar þeirra og fágætra bóka.
Við óskum Einari innilega til hamingju með framganginn.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta