Framgangur í stöðu prófessors
13. júní 2025

Framgangur í stöðu prófessors

Magnús Árni Skjöld Magnússon hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst samkvæmt niðurstöðu ytri dómnefndar, en hana skipuðu þau Dr. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild HÍ, Benedikt Bogason, prófessor við lagadeild HÍ og Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, dósent við viðskiptafræðideild HÍ.

Magnús hefur starfað bæði við kennslu og rannsóknir við Háskólann á Bifröst með hléum frá árinu 2000 og varð dósent við félagsvísindadeild háskólans árið 2011.  Hann hefur auk þess gegnt störfum deildarforseta félagsvísinda- og lagadeildar og rektors Háskólans á Bifröst. Magnús er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, MPhil í Evrópufræðum frá Cambridge-háskóla og M.Mus. í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands.

Hann hefur starfað sem pólitískur ráðgjafi fyrir NATO í Kabúl og matsaðili fyrir Erasmus+ á vegum Evrópusambandsins. Hann hefur átt sæti á alþingi og starfað við stjórnsýslu, rannsóknir, ráðgjöf og kennslu bæði á Íslandi og erlendis. Magnús hefur skrifað bækur og greinar um íslensk stjórnmál, evrópuvæðingu, efnahagsmál og öryggismál. Þá hefur hann í gegnum árin tekið virkan þátt í fjölmörgum fræðilegum ráðstefnum hér heima og erlendis. 

Við óskum Magnúsi innilega til hamingju með framganginn.