4. febrúar 2026
Félagsvísindadeild heimsækir UOC í Barcelona
Í janúar fór hópur starfsmanna frá félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst í Erasmus fræða- og kynnisferð til samstarfsskólans Universitat Oberta de Catalunya (UOC) í Barcelona. Dagskráin var þéttskipuð fundum og kynningum með kollegum og samstarfsfólki UOC. Í heimsókninni mynduðust nýjar tengingar á milli skólanna tveggja og ýmsar hugmyndir kviknuðu. Ferðin þykir hafa heppnast einkar vel og ekki síst varð hún til þess að styrkja böndin innan deildarinnar sjálfrar.
Myndasafn
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta