Mynd: Halla Helgadóttir

Mynd: Halla Helgadóttir

23. apríl 2021

Eru skapandi greinar til?

Er skapandi hugsun takmörkuð við eina atvinnugrein? Hefur listræn sköpun eitthvað með viðskipti að gera? Eru „skapandi greinar“ hugtak sem fólk skilur? Þetta og margt fleira verður rætt í opinni málstofu sem Háskólinn á Bifröst stendur fyrir og fram fer í tveimur hlutum dagana 18. og 25. maí nk. 

Háskólinn á Bifröst býður upp á BA-nám í skapandi greinum en það er ný námslína og sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Málstofunni er ætlað að opna umræðuna um þennan mikilvæga og ört vaxandi atvinnuveg en um leið að veita innsýn í það nýjasta sem er að gerast í rannsóknum á þessu sviði. 

Fyrri fyrirlesarinn er Stuart Cunningham prófessor emeritus  við Queensland University of Technology og leiðandi alþjóðlegur fræðimaður í skapandi greinum. Hann tilheyrir þeim hópi fræðimanna sem fyrstir hófu að nota hugtakið skapandi greinar í lok síðustu aldar og hefur verið mikilvirkur í rannsóknum og bókaskrifum um skapandi greinar alla tíð síðan. Erindi sitt kallar hann: „How coherent is the creative industries as a category and a sector?“ Eða: „Hversu heildstæðar eru skapandi greinar sem skilgreining og atvinnuvegur?” Seinni fyrirlesarinn er Erna Kaaber MA-nemi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Erindi hennar nefnist: „Menningarstefna Íslands og skapandi greinar”.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndagerðarkona og fagstjóri skapandi greina og Njörður Sigurjónsson prófessor og forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst halda utan um umræður.  

Málstofan fer fram í húsnæði Háskólans á Bifröst á Suðurlandsbraut 22 og á netinu og stendur yfir frá klukkan 9 til 11 þriðjudaginn 18.5. og þriðjudaginn 25.5. Málstofan hentar einkar vel þeim sem hyggja á BA-nám í skapandi greinum. Fyrir þá sem eru skráðir í nám við skólann veitir málstofan 2 einingar.  

Skráningar fara fram hér.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta