Ertu með hugmynd? Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri 16. - 17. mars
13. mars 2026

Ertu með hugmynd? Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri 16. - 17. mars

Dagana 16.–17. mars verður haldin 2 daga nýsköpunarvinnustofa í Innovation Hub Hvanneyri. 

Við skoðum hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum og sprotafyrirtækjum. Til að gera vinnuna hagnýta munum við vinna með 5 íslensk sprotafyrirtæki sem dæmi, en þátttakendur eru hvattir til að koma með sínar eigin hugmyndir til að ræða og þróa.  

Fyrirtæki sem koma fram eru:

Svepparíkið – Þróar sjálfbært ræktunarkerfi fyrir sælkerasveppi sem nýtir lífræna hliðarstrauma úr landbúnaði í hringrásarvæna matvælaframleiðslu.

Sveppasmiðjan – Byggir upp samþætt aquaponics-kerfi þar sem sveppir, grænmeti og fiskar eru ræktaðir saman í sjálfbæru framleiðslu- og rannsóknarumhverfi.

Lava Seaweed – Þróar landbundna ræktun á rauðþörungum sem nýtir næringarríkt frárennslisvatn úr fiskeldi í hringrásarkerfi.

Hvammsskel – Fjölskyldurekið fyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu bláskeljaræktar í Hvammsfirði og aukinni framleiðslu íslenskrar skeljar.

Stormur – Þróar lausnir þar sem gagnaver eru staðsett þannig að orka og afgangshiti nýtist betur í samfélaginu.

Hringvarmi – Nýtir afgangshita frá gagnaverum til að knýja staðbundnar einingar fyrir matvælaframleiðslu og bæta orkunýtingu.

Sea Growth – Þróar frumuræktað sjávarfang þar sem fiskfrumur eru ræktaðar til að framleiða sjálfbæran fisk án veiða eða hefðbundins fiskeldis.

Þú þarft ekki að vera með fullmótaða hugmynd – bara forvitni og áhuga. Hvort sem það er sproti, rannsóknarhugmynd, lausn í sjálfbærni eða eitthvað allt annað — allar hugmyndir velkomnar.  

Hefur þú áhuga? Merktu "going" á Facebook viðburðinn fyrir sprettinn ef þú ætlar að mæta.  Þátttaka er ókeypis, hlökkum til að sjá þig!