Erlendir lagakennarar heimsóttu Háskólann á Bifröst
Lagadeild Háskólans á Bifröst fékk í vikunni heimsókn frá þremur kennurum við lagadeild Krakow University of Economics í Póllandi, þeim Karol Ryszkowski, Önnu Juryk og Ewelina Badura.
Heimsóknin var styrkt af Erasmus-samstarfinu en í gildi er samstarfssamningur milli háskólanna. Gestirnir kynntu sér starfsemi Háskólans á Bifröst, kennslufyrirkomulag og verkefni lagadeildarinnar. Jafnframt voru möguleikar á frekara samstarfi milli skólanna í framtíðinni ræddir.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta