2. október 2020

Er Ísland borgríki?

Borgríkið. Reykjavík sem framtíð þjóðar nefnist bók Magnúsar Skjöld sem Háskólinn á Bifröst gaf nýverið út. Í bókinni fjallar Magnús um höfuðborgarsvæðið frá ýmsum hliðum og setur í samhengi við borgir og hlutverk þeirra.

Hvers konar borg er Reykjavík? Hvaða áhrif hefur hún haft á sögu og sjálfsmynd þeirrar þjóðar sem byggir þetta land? Hvert er aðdráttarafl hennar og hvernig er hún í samanburði við aðrar borgir? Hver gæti framtíð hennar orðið? Er Ísland borgríki úr því 8 af hverjum 10 Íslendingum búa á borgarsvæði Reykjavíkur? Er nokkurs staðar verra veður en í Reykjavík? Þessar spurningar eru meðal þeirra sem tekist er á við í bókinni.

Bókin skiptist í fimm kafla; Borgir og borgarvæðing, Umhverfi, Saga og skipulag, Stjórnmálin í Reykjavík, Fólkið og Framtíðin.

Magnús Skjöld var í viðtali við Þórhildi Ólafsdóttur í Samfélaginu á Rás 1 mánudaginn 29. september 2020. Viðtalið hefst á mínútu 02:25 hér.

Magnús Skjöld er dósent við Háskólann á Bifröst. Hann er doktor í stjórnmálafræði og með meistaragráður í alþjóða- og þróunarhagfræði og Evrópufræði. Magnús hefur stundað rannsóknir á borgum og sveitarfélögum um nokkurt skeið. Hann hefur setið í stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Landsnefndar UN Women á Íslandi og Women Power Africa og var þingmaður Reykvíkinga 1998-1999. Árið 2018 starfaði Magnús sem pólitískur ráðgjafi borgaralegs sendifulltrúa NATO í Kabul í Afghanistan.

Borgríkið. Reykjavík sem framtíð þjóðar er fyrsta bók Magnúsar Skjöld.

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta