Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina?
2. febrúar 2026

Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina?

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) stendur að fundaröðinni Samtal um skapandi greinar í samstarfi við CCP. Stofnaðilar RSSG eru Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum. 

Fimmtudaginn 5. febrúar fer fram samtal með yfirskriftinni Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? kl. 8.30-10.00 í höfuðstöðvum CCP í Grósku, 3. hæð. Auk CCP er viðburðurinn haldinn í samstarfi við Listháskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Jafnréttisdaga háskólanna en hann er hluti af dagskrá Jafnréttisdaga.

Nánari upplýsingar og skráning á vef RSSG