Eiríkur Bergmann álitsgjafi The New York Times um Ísland og ESB
Atkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildaviðræður Íslands og Evrópusambandsins vekur athygli á alþjóðavettvangi. Nýlega var ítarleg umfjöllun í The New York Times um málið.
Í greininni er farið yfir hvernig breytt staða í öryggis- og alþjóðamálum – sérstaklega spenna sem tengist yfirlýsingum Donalds Trump Bandaríkjaforseta í garð Grænlands – hefur flýtt fyrir pólitískri umræðu hér á landi.
Meðal álitsgjafa er Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Í umfjölluninni varpaði Eiríkur ljósi á þann þrýsting og þá valkosti sem þjóðin stendur frammi fyrir: „Fólki telur að það gæti neyðst til að velja á milli tveggja kosta.“
Fréttamenn The New York Times ferðuðust um landið til að fanga stemninguna og ræddu við fjölbreyttan hóp; allt frá þorskveiðimönnum og pylsusölum til kennara og æðstu ráðamanna. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, segir við blaðið að svæðisbundin spenna hafi breytt viðhorfi almennings og fært utanríkismál framar í huga kjósenda. „Grænlandskrísan hitti svo sannarlega á viðkvæman punkt. Staðan hefur svo sannarlega breyst,“ segir forsætisráðherra.
Í greininni er farið yfir að sem auðug og herlaus NATO-þjóð á mikilvægum hernaðarlega mikilvgum slóðum, horfi Íslendingar í auknum mæli til ESB og stöðugleika.
Það að leitað sé til fræðimanna Háskólans á Bifrastar í alþjóðlegri umfjöllun sem þessari sýnir sterka stöðu skólans þegar kemur að greiningu á rannsóknum á sviði alþjóðastjórnmála, Evrópufræða og öryggismála á Norðurslóðum.
Greinina í heild sinni, sem ber titilinn „Iceland, Rattled by Trump, Weighs Joining the E.U.,“ má nálgast á vef The New York Times.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta